Fara í efni
Mannlíf

Lækka fasteignaskatt en útsvar óbreytt

Álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,31% í 0,28% á Akureyri á næsta ári og á atvinnuhúsnæði lækkar hún úr 1,63% í 1,61%. Álagður skattur mun því lækka alls um 180 milljónir milljónir kr. á íbúðarhúsnæði í bænum en um 22 milljónir á atvinnuhúsnæði.

Fasteignamat er reiknað út árlega af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Tilkynnt var um mitt ár að fasteignamat íbúðarhúsnæðis á Akureyri  muni hækka um 10,6% á milli áranna 2025 og 2026 og þá ákváðu bæjaryfirvöld, vegna áskorunar Félags atvinnurekenda til sveitarfélaga , að láta reikna út mismunandi sviðsmyndir við mögulega lækkun á fasteignaskattsprósentu.

Lækkunin var samþykkt í bæjarstjórn í gær. Álagningarprósenta fasteignaskatts segir um hve hátt hlutfall af fasteignamati húsnæðis greiðar þarf yfir árið.

Hér má sjá dæmi um hvað breytingin þýðir varðandi íbúðarhúsnæði:

  • Fasteignamat 100 milljónir kr.fasteignaskattur 280 þúsund30.000 kr. lægri en skatturinn hefði orðið með óbreyttri álagningarprósentu.
  • Fasteignamat 75 milljónir kr. – fasteignaskattur 210 þúsund22.500 kr. lægri en hefði orðið.
  • Fasteignamat: 50 milljónir kr. – fasteignaskattur 140 þúsund15.000 kr. lægri en hefði orðið.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fór fram á fundi bæjarstjórnar í gær. Síðari umræða verður þriðjudaginn 2. desember.
 
  • Vert er að geta þess að útsvarsprósentan verður óbreytt á Akureyri eða 14,97% – sem er leyfilegt hámark.
  • Útsvar er sá hluti tekjuskatts sem rennur til sveitarfélaga og gert er ráð fyrir að útsvarstekjur Akureyrarbæjar verði 18,26 milljarðar króna; hækki um 3,6% frá útkomuspá ársins 2025.