Kynna indverskt kaffi og mangó á Akureyri
Markmið viðburðarins er að sýna fram á fjölbreytileika, bragð og menningarlegt mikilvægi indverskra mangóa, að því er segir í tilkynningu á viðburðinum, sem kynntur er sem hluti Listasumars. „Gestir fá tækifæri til að upplifa fjölbreytt úrval gæðamangóa frá mismunandi svæðum Indlands, þar á meðal þekkt afbrigði eins og Alphonso, Kesar, Banganapalli og Dasheri,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir ennfremur:
Við munum einnig bjóða upp á indverskt kaffi og gefa gestum kost á að fara í skynrænt ferðalag um fjölbreytt kaffiræktarsvæði Indlands. Þetta verður frábært tækifæri til að fræðast um indverskt kaffi og kanna möguleika á kaffiviðskiptum milli Íslands og Indlands.
Indversk mangó eru rómuð um allan heim fyrir einstaka sætu, skæra liti og fjölbreytt afbrigði. Indland er stærsti framleiðandi mangóa og ræktar yfir hundrað mismunandi tegundir á ólíkum svæðum. Indversk mangóafbrigði eru þekkt fyrir einstakt bragð og áferð. Mangóið, oft kallað „konungur ávaxtanna“, hefur djúpa menningarlega þýðingu á Indlandi og táknar jafnframt velmegun, gnægð og hamingju.
Umræddur viðburður miðar að því að styrkja menningartengsl Indlands og Íslands ásamt því að auka vitund um framúrskarandi landbúnað og matarmenningu Indlands.
- Kynningarfundirnir eru báðir frá klukkan 16.00 til 18.00. Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar mun ávarpa samkomuna í dag.
Allir eru velkomnir en mælt er með því að fólk skrái sig í gegnum rafrænt eyðublað hér