Fara í efni
Mannlíf

Krónuhjólamót fyrir börn í Kjarnaskógi

Yngsti aldursflokkurinn klár á ráslínu. Myndir: Karolina Rudnicka.

Krónumótið í hjólreiðum fór fram í Kjarnaskógi sunnudaginn 14. júní og heppnaðist afar vel, að sögn mótshaldara. Mótið er fyrir börn á aldrinum 2-12 ára og keppt er í sex aldursflokkum. Yfir 100 börn mættu til leiks og fengu öll verðlaunapening og glaðning að móti loknu.

Þetta er í annað sinn sem mótið er haldið norðan heiða og líkt og í fyrra stóðu Hjólreiðafélag Akureyrar, Akureyrardætur og Krónan fyrir mótinu, auk þess sem hjólakapparnir í BMX Brós sýndu hjólalistir sínar.

Nokkrar myndir frá mótinu: