Mannlíf
Krefjast meðferðar vegna tískustrauma
10.06.2025 kl. 13:30

„Kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu vex hratt með hverju árinu sem líður: Stöðugt koma fram nýjungar í læknisfræði og flestar eru þær kostnaðarsamar. Tískustraumar með auknum áhuga verða til þess að nýir og stórir hópar krefjast meðferðar sem áður var ekki talin nauðsynleg.“
Þetta segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í nýjum pistli sem Akureyri.net birtir í dag.
„Lausnin gegn lífsstílssjúkdómum virðist ætla að verða að taka ný, háþróuð og afar dýr lyf gegn þeim, fremur en að bæta og breyta lífsstílnum. Það er hollt fyrir okkur öll að hugleiða þessi flóknu mál og mikilvægt er að leita nýrra leiða og hugmynda og jafnvel markvissra, róttækra aðgerða,“ segir Ólafur og nefnir nokkur dæmi.
Pistill Ólafs: Virðisauki heilsu