Fara í efni
Mannlíf

Krakkar úr Fjallabyggð unnu Fiðring – MYNDIR

Sigurvegarar Fiðrings, krakkar úr Grunnskóla Fjallabyggðar, fagna gærkvöldi. Ljósmyndir: Daníel Starrason

Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum í hæfileikakeppninni Fiðringi í gærkvöldi. Úrslitakvöld keppninnar fór þá fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Þetta er í annað sinn sem Fiðringur á Norðurlandi er haldinn. Í fyrra tóku átta skólar þátt og þá komust öll atriðin fyrir á einu kvöldi. Í ár tóku 12 skólar þátt. Því var haldin undankeppni í Tjarnarborg í Ólafsfirði og önnur í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit. Úrslitakvöldið var svo í Hofi í gærkvöldi sem fyrr segir, þar sem fjórir skólar frá hvoru kvöldi kepptu um farandverðalunagrip Fiðrings.

Seinna er of seint – vinningsatriði Grunnskóla Fjallabyggðar.

Alla vorönnina hafa liðin samið, æft og útfært atriðin „og í gærkvöldi var spennan orðin óbærileg,“ eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum Fiðrings. „Það er ekkert lítill skóli að fá að koma sinni eigin hugmynd upp á svið – bara það að velja eina hugmynd getur verið mjög snúið. Þau gera allt sjálf með dyggum stuðningi leiðbeinenda sinna sem eru til halds og trausts og miðla málum og hvetja þau áfram. Þau sjá sjálf um tæknina, búninga, förðun, hanna dansa, skrifa texta og æfa og æfa og æfa.“

Hjálp! – Oddeyrarskóli á Akureyri varð í 2. sæti í keppninni.

Stemningin í Hofi var rafmögnuð að sögn aðstandenda Fiðrings, „stappfullt hús af áhorfendum og ríflega 120 keppendur sem blómstruðu á sviðinu í dansi söng og leik. Kynnar kvöldsins voru Vandræðaskáldin Villi og Sessí og ungstirnið Gugusar brilleraði í dómarahléinu. Dómarar kvöldsins voru Marta Nordal leikhússtjóri, Jenný Lára Arnórsdóttir skólastjóri Leiklistarskóla LA og Freyja Dögg fulltrúi frá Ungmennaráði Akureyrar. Þær fengu það erfiða hlutskipti að raða í þrjú efstu sætin.“

Bréfið – Þelamerkurskóli sem varð í 3. sæti

SigurvegarI í ár er Grunnskóli Fjallabyggðar, eins og getið var í upphafi. Skólinn flutti atriðið Seinna er of seint og fjallar um það „hvernig við erum stela okkar eigin framtíð með því að spilla jörðinni. Í öðru sæti varð Oddeyrarskóli með atriðið Hjálp! Þar er umfjöllunarefnið hinir ýmsu erfiðleikar sem unglingar glíma við dags daglega í samfélaginu. Í þriðja sæti varð svo Þelamerkurskóli með atriðið Bréfið sem er e.k. kveðjubréf stúlku eða stúlkna sem eru að bugast undan álaginu sem fylgir því að vera stelpa. Það var magnað að verða vitni að því hvað unglingarnir hafa margt að segja og hvað þau geta sagt það á frjóan og skapandi hátt! Áfram menning og listir!“

  • Menningarfélag Akureyar, SSNE, Barnamenningarhátíð, Samfélagssjóður Landsbankans, þátttökuskólarnir allir og SBA gerðu Fiðring að veruleika með stuðningi sínum, segir í tilkynningu.

Seinna er of seint – vinningsatriði Grunnskóla Fjallabyggðar.

Áhorfendur voru fjölmargir og stemningin góð.

Gugusar flutti Fiðringslagið.

Kynnar kvöldsins, Vandræðaskáldin Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason.