Fara í efni
Mannlíf

Körfubolti heima – íshokkí í Laugardal

Smári Jónsson og Kolbrún Björnsdóttir verða í eldlínunni með sínum liðum í kvöld. Smári með Þór í Íþróttahöllilnni og Kolbrún með SA í Skautahöllinni í Laugardal.

Karlalið Þórs í körfubolta tekur á móti Skallagrími í 1. deild karla í Íþróttahöllinni í kvöld kl. 19:15. Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí sækir SR-inga heim í Toppdeild kvenna. 

Karlalið Þórs í körfubolta hefur átt fremur erfiðan vetur og situr í þriðja neðsta sæti 1. deildarinnar með aðeins þrjá sigra í fyrstu 17 leikjum sínum. Fimm umferðir eru eftir af deildinni og eiga Þórsarar eftir að mæta nokkrum liðum úr neðri hlutanum, meðal annarra báðum liðunum sem eru fyrir neðan þá, Hamri og Fylki.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Skallagrímur

Skallagrímur vann 12 stiga sigur, 100-88, í fyrri leik liðanna sem fram fór í Borgarnesi í nóvember. Borgnesingar eru í 6. sæti deildarinnar.

Deildarmeistarar SA fara suður

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Toppdeildinni með sigri á SR um liðna helgi, en enn eru þó eftir nokkrir leikir í deildinni. Þessi lið mætast aftur syðra í kvöld. Leikurinn er sá fyrsti í Ofurhelgi hjá íshokkíkonunum þar sem öll þrjú liðin mætast sömu helgina. Þetta er tilraun sem Íshokkísambandið fór af stað með á þessu tímabili. Þrjár ofurhelgar eru spilaðar hjá körlunum, en ein hjá konunum.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA

SA hefur unnið allar viðureignir þessara liða það sem af er yfirstandandi tímabili, en tvær þeirra þó eftir framlengingu og vítakeppni í Laugardalnum. SA vann SR 5-2 á útivelli um liðna helgi og var það í fyrsta skipti sem SR skorar fleiri en eitt mark í viðureignum liðanna í vetur.