Körfubolti: 30 stiga tap Þórsara fyrir Fjölni
Þór tapaði með 30 stiga mun fyrir Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Lokatölur 105-75. Þórsarar eru áfram í 10. sæti deildarinnar.
Heimamenn í Grafarvoginum höfðu yfirburði frá upphafi leiks, unnu fyrsta leikhlutann með 11 stigum og annan leikhluta með 22 stigum þar sem Þórsarar skoruðu aðeins tíu stig, staðan í leikhléi 59-26. Seinni hálfleikurinn var jafnari, en munurinn hélst áfram í kringum 30 stigin og lokaniðurstaðan 30 stiga sigur Fjölnis, 105-75.
Fjölnir - Þór (27-16) (32-10) 59-26 (25-24) (21-25) 105-75
Christian Caldwell var langstigahæstur Þórsara með 31 stig, raunar sá eini sem komst í tveggja stafa tölu. Sigvaldi Eggertsson skoraði flest stig Fjölnismanna, 25.
Helstu tölur Þórsliðsins, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Christian Caldwell 31/13/1 - 31 framlagspunktur
- Týr Óskar Pratiksson 9/2/0
- Finnbogi Páll Benónýsson 8/4/1
- Eiríkur Frímann Jónsson 7/5/5
- Pétur Cariglia 7/4/1
- Arngrímur Friðrik Alfreðsson 7/2/0
- Axel Arnarsson 3/2/5
- Hákon Hilmir Arnarsson 3/2/2
- Smári Jónsson 0/3/2
Þórsarar eru áfram í 10. sæti deildarinnar með þrjá sigra eftir 19 umferðir. Hamar er í sætinu fyrir neðan, einnig með þrjá sigra, og Fylkir í botnsætinu með tvo sigra. Þessi tvö lið eru einmitt andstæðingar Þórsara í tveimur næstu leikjum.