Fara í efni
Mannlíf

Knappareynir virðist þrífast vel hér á landi

„Um austurhluta Norður-Ameríku vex reynitegund sem reynd hefur verið hér á landi. Hún er kennd við álfuna alla og heitir Sorbus americana Marshall á fræðimálinu. Ekki er annað að sjá en tegundin þrífist hér prýðilega eins og svo margar reynitegundir sem reyndar hafa verið á Íslandi.“

Þannig hefst pistill Sigurðar Arnarson í röðinni Tré vikunnar sem birtist á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga í dag og akureyri.net birtir hlut af að vanda.

Á heimaslóðum myndar knappareynir oftast um tíu metra hátt tré, segir Sigurður, en í sumum tilfellum allt að fimmtán metra hátt. Sums staðar myndi hann frekar runna en tré.

„Ekki er alltaf auðvelt fyrir almenning að þekkja þessa tegund frá íslenska ilmreyninum, S. aucuparia. Knappareynir blómstrar að jafnaði seinna, þroskar ber seinna en líkur vexti fyrr og fer fyrr í haustliti en íslenski reynirinn. Að vísu er íslenski reynirinn svo fjölbreyttur að vandi er að treysta á þessi atriði í blindni. Samt sem áður má segja að þetta geri það að verkum að ef knappareynir er ræktaður með öðrum reynitegundum þá eykst fjölbreytnin og tími blómgunar, berjaþroska og haustlita lengist.“

Pistill Sigurðar í dag: Knappareynir