Fara í efni
Mannlíf

Kjartan starfaði 54 ár hjá Norðurorku og forverum!

Kjartan S. Friðriksson og Erla Björg Guðmundsdóttir mannauðsstjóri Norðurorku. Mynd af vef fyrirtækisins.

Kjartan S. Friðriksson lét nýverið af störfum hjá Norðurorku og óhætt að segja að töluverð reynsla hverfi þar með á braut. Kjartan hefur nefnilega unnið í 54 ár hjá fyrirtækinu og forverum þess – allan sinn starfsaldur! Slíkt er fágætt í vinnumarkaði nútímans, segir á vef Norðurorku, og það eru örugglega engar ýkjur.

„Það er gaman að segja frá því að almennt er starfsaldur hár í fyrirtækinu og starfsmannavelta lítil,“ segir á vef Norðurorku þar sem greint er frá því að nýlega hafi verið veittar starfsaldursviðurkenningar. „Það voru 23 einstaklingar sem höfðu starfað í 10 ár eða lengur hjá Norðurorku þegar viðurkenningarnar voru veittar og var samanlagður starfsaldur þeirra 545 ár. Í slíkri reynslu býr mikill mannauður.“

Líkaði alltaf vel

Einn þeirra sem hlaut viðurkenningu fyrir starfsaldur var áðurnefndur Kjartan S. Friðriksson, „70 ára unglamb sem státaði af 54 ára starfsaldri þegar hann lét af störfum,“ eins og segir á vefnum.

Kjartan hóf störf hjá Vatnsveitunni 3. maí 1969, með glænýtt bílpróf. „Það voru allir í innbænum sem fengu vinnu hjá Vatnsveitunni í gamla daga. Þeir voru búnir að vera verkstjórar innan úr bæ, Gunni Sót og Rabbi,“ segir Kjartan á vef Norðurorku. „Ég byrjaði á skóflunni og var þar í tvær vikur þangað til ég var settur á gröfu. Ég var dálítið lengi á gröfunni, alveg til ´78 en þá tók ég við vörubíl og var þar alltaf eftir það.“

Aðspurður hvers vegna hann hefði unnið svona lengi hjá Norðurorku segir Kjartan að honum hefði einfaldlega alltaf líkað vel „og svo urðu alltaf einhverjar breytingar. Frá því að vera í Vatnsveitunni þegar Hitaveitan kom og svo bættist Rafveitan við og það var svona tilbreyting. Mesta byltingin var hins vegar þegar komu fjölstýringar á krana og maður þurfti ekki alltaf að hanga á krananum, snúinn til að sjá hvað maður var að gera og svo hafa tækin alltaf orðið betri og betri.“

Gæti náð jafn háum starfsaldri!

Gott starfsfólk er gulli betra, segir á vef Norðurku „og Kjartan var sannarlega framúrskarandi starfskraftur, óskaplega flinkur og til marks um það er að hann hefur alla tíð verið tjónlaus þó vinnuaðstæðurnar hafi sannarlega oft verið krefjandi. Sjálfur segist Kjartan hafa verið heppinn en við sem höfum unnið með honum vitum að það þarf meira til en heppni.“

Á vef Norðurorku segir ennfremur: „Þó það geti ekki beinlínis talist líklegt að starfsaldur Kjartans verði jafnaður er sá möguleiki þó fyrir hendi því hjá Norðurorku starfar enn Aðalsteinn Baldursson, sem varð sextugur sl. sumar og tók til starfa hjá forverum Norðurorku 1. mars 1978, tæpum fjórum mánuðum áður en hann varð 16 ára. Steini er ekki minna gull en Kjartan en það er efni í aðra grein.“

Kjartan er spurður hvort honum hefði ekki fundist viðbrigði að hætta allt í einu að vinna og svarar því til að fyrstu vikuna hafi honum svolítið liðið eins og hann væri að svíkjast um „en eftir það væri þetta bara alger draumur. Hann fer í sund og stundar hestamennsku af krafti og fullvíst að hann slær hvergi slöku við þó vörubíllinn sé nú kominn í góðar hendur annars starfsmanns Norðurorku,“ segir að endingu í greininni á vef fyrirtækisins.