Fara í efni
Mannlíf

Jólatrésskemmtun haldin í Kjarnaskógi

„Karamella og köngull, þetta er loforð!“ segir í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga í tilefni þess að á morgun, laugardag, verður haldin jólatrésskemmtun í Kjarnaskógi. Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir þann draum að rætast að halda slíka samkomu í skóganum og vonandi verði viðburðurinn árlegur héðan í frá.

„Eins og allir vita eiga jólasveinarnir heima í Kjarnaskógi, rétt hjá ærslabelgnum á Birkivelli. Í samstarfi við þá og Félag eldri borgara á Akureyrir býður Skógræktarfélag Eyfirðinga öllum börnum sem leið eiga um Kjarnaskóg laugardaginn 17. desember að dansa kring um jólatréð við grillhúsið á Birkivelli kl. 16,“ segir í tilkynningunni.

Ingólfur segir að á vígsludegi Birkivallar árið 2017 hafi rauðgrenijólatrénu fína verið plantað gagngert til að dansa í kring um það í fyllingu tímans. Því hefur nú vaxið fiskur um hrygg og tímabært að það fái að sinna hlutverki sínu, segir hann.

Jólasveinarnir hafa lofað að gefa hverju „þægu barni“ gómsæta karamellu og köngul af skógartré, að sögn Ingólfs. Einnig verður í boði rjúkandi súkkulaði fyrir alla sem og ketilkaffi fyrir fullorðna. „Vinir okkar hjá félagi eldri borgara leiða söng og dans og miðla þannig Gekk ég yfir skóg og land til komandi kynslóða. Hljómsveitin Birkibandið leikur svo undir herlegheitin.“

„Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis eins og alltaf en þið verðið að klæðast eftir aðstæðum, í desember er allra veðra von á Akureyri og besta veðrið í Kjarna

Fjölmargir nýta göngu, hjóla og skíðaleiðir í Kjarnaskógi sér til heilsubótar á degi hverjum. Við lítum á þetta sem venjulegan dag í skóginum okkar en langar að gera þessa jólatrésskemmtun að árlegum viðburði. Hvetjum foreldra, afa og ömmur osfrv til að njóta útivistar með börnunum úr fjölskyldunni í aðdraganda jóla, staldra við stutta stund á Birkivelli, fá sér snúning kring um jólatréð og kankast aðeins á við jólasveinana á leið ykkar um skóginn.“