Jólaball í Kjarnaskógi og sveinar á Pollinum í dag
- JÓLASVEINAR Á RÓÐRABRETTUM
Nokkrir jólasveinar sem eru vanir róðrabrettum bregða á leik eftir hádegi; ætla að fagna komu jólanna „með sínum árlega sullu-glæsibrag á Pollinum“ eins og það er orðað í tilkynningu. Þetta er sjötta árið í röð sem róðrabrettasveinar skemmta sér og öðrum með þessum hætti. Þeir verða í grennd við svæði siglingaklúbbsins Nökkva á milli klukkan 13.00 og 14.00 „ef veður og færð leyfa“, eins og það er orðað, og „hlakka til að sjá sem flest börn á öllum aldri.“
- JÓLABALL Í KJARNASKÓGI
Árleg jólatrésskemmtun Skógræktarfélags Eyfirðinga – Karamella og köngull – verður í Kjarnaskógi frá klukkan 15:45 til 17:00.
„Ungir sem aldnir dansa kring um jólatréð skrautlega á Birkivelli (rétt hjá ærslabelgnum) undir stjórn Birkibandsins,“ segir í tilkynningu. „Vinir okkar og nágrannar, Súlusveinarnir Hurðaskellir, Kertasníkir og Kjötkrókur mæta að sjálfsögðu í dansstígvélunum sem fyrr, syngja nokkur lög og segja sögur af árlegu jólabaði í ísilagðri Brunnánni.“