Fara í efni
Mannlíf

Jói Bjarki, Davíð, Berglind og Kvíðadjöfull

Jóhannes Bjarki Sigurðsson á Akureyri hefur sent frá sér lagið Kvíðadjöfull og sagan af verkefninu er sannarlega áhugaverð. Textinn varð til vegna andlegra veikinda Berglindar Lífar, dóttur Jóhannesar, haustið 2024 og hún syngur lagið sem er finna á helstu streymisveitum að sögn höfundarins.

Jói Bjarki, eins og hann kallar sig, segist hafa gutlað við tónlist síðustu ár, eftir að hafa „fundið mig í þessu á gamals aldri,“ eins og hann orðar það. Hann er fæddur og uppalinn á Hjalteyri við Eyjafjörð en hefur búið á Akureyri öll fullorðinsárin. „Ég bý nú á Oddeyrinni með eiginkonu og þremur „börnum“. Tvö af þessum þremur eru orðin fullorðin og það eru einmitt þau sem eru með mér í þessu nýja lagi. Berglind Líf er 22 ára og Davíð Máni 24 ára. Ég er víst orðinn 50 ára gamall! Ótrúlegt en satt.“

Ofsakvíði og vanlíðan tengd honum

Hann segir að í október 2024 hafi hann verið kominn með beinagrind að laginu. „Á þeim tímapunkti var Berglind Líf, dóttir mín, í innlögn á geðdeild í fyrsta skipti á ævinni vegna ofsakvíða og vanlíðunar tengdri honum, ásamt fleiri andlegum kvillum,“ segir hann. „Þessi barátta hennar, og okkar hinna í fjölskyldunni auðvitað, varð kveikjan að texta lagsins; mér fannst tilvalið að búa til texta sem endurspeglaði hennar líðan og upplifun á þessu gríðarlega erfiða tímabili sem stendur enn yfir þó allt sé á réttri leið. Baráttulag fyrir ofsakvíða sjúklinga og fólk sem er að berjast við andleg veikindi.“ 

Vildi fá Berglindi Líf til að syngja

Jóhannes Bjarka langaði frá upphafi að fá Berglindi Líf til að syngja lagið og tókst það að lokum, „en hún er mikil áhugamanneskja um söng og tónlist. Það er bróðir hennar Davíð Máni líka. Hann hefur verið áberandi í grasrótarsenu rokksins á Akureyri síðustu árin.“

Davíð Máni tók að sér að spila gítarkafla þar sem upp á vantaði og auk þess sóló í lok lagsins. „Ég var áður búinn að spila á kassagítara og eitthvað á rafmagnsgítar líka, ásamt því að búa til bassalínu, syngja og radda. Allt var þetta unnið í heimastúdíóinu mínu þegar tími gafst til við mjög krefjandi aðstæður á heimilinu vegna veikinda dótturinnar,“ segir faðirinn stoltur. „Þetta er frumraun mín í að gera allt sjálfur varðandi það að gefa út lag en áður hef ég gefið út 4 lög með aðstoð annarra. Það síðasta, Alone, gaf ég út 6. september. í fyrra á 50 ára afmælisdeginum mínum.“