Já, þú heyrðir rétt – pylsa með rauðkáli!
Vínarpylsan barst til Íslands eins og svo margt annað úr danskri og miðevrópskri matarmenningu, en hér tók hún fljótlega á sig séríslenskt yfirbragð, segir Þráinn Lárusson í nýjum pistli í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net birtir í dag.
Þráinn fjallaði um sögu pylsunnar í pistli fyrir viku. – Enginn veit hver gerði fyrstu pylsuna eða hvar hún varð til en elstu vísbendingar um pylsugerð er að finna í hinum fornu menningarsamfélögum Mesópótamíu. Á leirtöflu frá tímum Hammúrabís, sem ríkti í Babýlon á 18. öld fyrir Krist, skrifaði Þráinn þá, en íslenska pylsan er til umfjöllunar í dag.
„Fyrsta pylsugerðin í Reykjavík virðist hafa verið í höndum Jóns Þórðarsonar kaupmanns. Jón hóf verslunarrekstur í Reykjavík árið 1891 og var brautryðjandi í sölu og vinnslu íslenskra kjötafurða,“ skrifar Þráinn í fjölbreyttum og fróðlegum pistli.
Þráinn fjallar um SS pylsuna, sinnepið sérstaka, tómatsósuna sem er ekki tómatsósa og vitaskuld um akureyrskar pylsur og akureyrska pylsumenningu. „Á Akureyri skapaðist sérstök pylsuhefð um miðjan sjöunda áratuginn þegar farið var að bera pylsur fram með rauðkáli,“ skrifar Þráinn meðal annars.
- Pistill dagsins: Pylsa með rauðkáli?