Ísland 1970: „Pizzan er borin fram heit“
„Saga pizzunnar á Íslandi hófst ekki með neinum látum heldur í smáum skrefum. Í upphafi áttunda áratugarins fór að bera á tilraunum með pizzur á einstaka veitingahúsum í Reykjavík, en þær tilraunir einkenndust fremur af vilja en getu og þekkingu.“
Þannig hefst matarpistill Þráins Lárussonar sem akureyri.net birtir í dag. Það er fyrsti pistill hans um þá vinsælu ítölsku uppfinningu, pizzu, eins og Þráinn skrifar, en gjarnan er nefnd pitsa hérlendis, jafnvel flatbaka.
Þráinn segir að svo virðist sem Eggert Eggertsson í Smárakaffi hafi fyrstur boðið Íslendingum pizzur. „Í viðtali við Morgunblaðið í desember 1970, undir fyrirsögninni „Pizzan er borin fram heit“, segist hann hafa kynnst pizzunni á siglingum til Bandaríkjanna. Eitthvað virðast þó staðreyndirnar hafa vafist fyrir honum, því hann fullyrðir að pizza samanstandi af brauðbotni, ansjósum eða sardínum, tómötum og miklu magni af osti, bæði undir og ofan á. Hann bætir við að „hin eina sanna pizza“ sé með skinku og aspas.“
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Pistill Þráins í dag: Pizzan kemur til Íslands