Fara í efni
Mannlíf

Íshokkí: Karlarnir hefja einvígið í kvöld

Mynd úr þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í fyrra þegar SA tryggði sér 3-0 sigur í einvíginu og Íslandsmeistaratitilinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla hefst í kvöld þegar SA Víkingar sækja lið Skautafélags Reykjavíkur heim í Laugardalinn.

Þetta er fimmta árið í röð sem SA og SR eigast við í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn og hafa liðin skipt titlunum undanfarin fjögur ár jafnt á milli sín. SA vann í fyrra og 2022, en SR vann 2023 og 2024. Bæði árin sem SR vann höfðu SA Víkingar orðið deildarmeistarar, en SR-ingar hófu einvígin á því að vinna í Skautahöllinni á Akureyri og unnu einvígið í bæði skiptin í oddaleik á Akureyri með eins marks mun.

Úrslitaeinvígin undanfarin ár:

  • 2025: SA vann 3-0
  • 2024: SR vann 3-2
  • 2023: SR vann 3-2
  • 2022: SA vann 3-1

SR-ingar urðu deildarmeistarar í ár, enduðu með 36 stig, en SA Víkingar náðu sér í 33 stig. Það eru því Reykvíkingar sem eiga oddaleiksréttinn og hefst einvígið fyrir sunnan, í Skautahöllinni í Laugardal. 

Fjórir af átta í framlengingu

Spiluð var áttföld umferð í Toppdeild karla í vetur, það er liðin sem spiluðu í A-hlutanum eftir forkeppni deildarinnar í haust. SA vann fjórar viðureignir í innbyrðis viðureignum liðanna sem nú kljást um Íslandsmeistaratitilinn og SR sömuleiðis fjórar.

Það er jafnan vel mætt í Skautahöllina á Akureyri, sérstaklega í úrslitakeppninni. Akureyringar þurfa þó að bíða fram á fimmtudag til að komast á heimaleik í einvíginu. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Fimm leikir voru spilaðir fyrir áramót og vann SA fjóra þeirra. SR-ingar hafa hins vegar unnið alla þrjá leiki þessara liða á árinu 2026. Fjórum sinnum hafa liðin verið jöfn að loknum venjulegum leiktíma og þá framlengt og í tvö skiptin fóru viðureignirnar í vítakeppni. Aðeins tveir af þessum átta leikjum unnust á útivelli.

Innbyrðis leikir SA og SR í deildinni í vetur:

  • SA - SR 9-4
  • SA - SR 5-4
  • SR - SA 6-3
  • SA - SR 5-4 (framlenging)
  • SR - SA 3-4 (framlenging og vító)
  • SA - SR 2-3
  • SR - SA 4-3 (framlenging)
  • SR - SA 5-4 (framlenging og vító)

Leikdagar í úrslitaeinvíginu:

  • Skautahöllin í Laugardal þriðjudaginn 10. mars kl. 19:45
  • Skautahöllin á Akureyri fimmtudaginn 12. mars kl. 19:30
  • Skautahöllin í Laugardal laugardaginn 14. mars 17:45
  • Skautahöllin á Akureyri þriðjudaginn 17. mars kl. 19:30 (ef þarf)
  • Skautahöllin í Reykjavík fimmtudaginn 19. mars kl. 19:45 (ef þarf)

Það lið sem vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari.