Fara í efni
Mannlíf

ÍSBAND sýnir fjölda bíla á Vetrarlífi um helgina

Útivistarsýningin Vetrarlíf verður haldin á Akureyri um helgina. Þar verður meðal annars sýning á ýmsum bílum frá bílaumboðinu ÍSBAND að því er segir í tilkynningu. Þar kemur fram að sérstakur afsláttur verði á sýningar- og reynsluakstursbílnum.

Tilkynningin er svohljóðandi:

ÍSBAND bílaumboð efnir til glæsilegrar bílasýningar á útivistarsýningunni Vetrarlíf sem haldin verður dagana 25. og 26. nóvember nk. í Reiðhöll Léttis, Safírstræti 2 á Akureyri. Frá Jeep verður sýndur bíll ársins í Evrópu Jeep Avenger, sem er fyrsti 100% rafknúni bíllinn frá Jeep. Þá verða einnig Jeep Renegade, Jeep Compass og Jeep Wrangler Rubicon jepparnir sýndir. Alvöru jeppar með alvöru fjórhjóladrifi og lágu drifi. Sýndir verða breyttir Jeep Wrangler og RAM 3500, en þjónstusverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á Jeep og RAM bifreiðum. Loks verður sýndur Alfa Romeo Tonale Veloce Q4, sem er glæsilegur sportjeppi og fyrsti Plug-In-Hybrid bíllinn frá Alfa Romeo.

Sérstakt tilboð verður á sýningar- og reynsluakstursbílum. Jeep með allt að 1.770.000 kr. afslætti og RAM 3500 og Alfa Romeo Tonale með allt að 1.000.000 kr. afslætti.

Sýningin er opin á laugardeginum á milli kl. 11:00 og 17:00 og á sunnudeginum á milli kl. 11:00 og 15:00. Enginn aðgangseyrir er að sýningunni.“

Þess er að auki getið að eftir að sýningunni lýkur á sunnudaginn verður boðið upp á reynsluakstur á sýningarbílunum hjá Stormi á Óseyri 4, frá klukkan 15.30 til 17.30.