Fara í efni
Mannlíf

Icewear kötturinn: „Ágústa mikill karakter“

Ágústa býr í Icewear búðinni við Hafnarstræti og vekur mikla athygli heimafólks og gesta. Starfsfólkinu þykir vænt um þennan hefðarkött og sterka karakter. Myndir: Rakel Hinriksdóttir

„Hún á þessa búð, það er alveg á hreinu,“ segir Kata Walankiewicz, starfsmaður Icewear við göngugötuna, um kisuna Ágústu sem býr í búðinni. Það eru allskonar teppi til sölu í Icewear, en eitt þeirra er kallað Ágústuteppið, og það má ekki selja það, vegna þess að þar sefur Ágústa á nóttunni. Blaðamaður Akureyri.net heimsótti Kötu og Ágústu í verslunina, til þess að kynnast þessum góðkunninga miðbæjarins betur.

Hún er tólf ára, frekar gömul og nennir ekki neinu veseni

Ágústa kom fyrst inn í verslun Icewear fyrir átta árum síðan, en frásögn Aðalsteins Árnasonar, sem var verslunarstjóri búðarinnar á þeim tíma er eitthvað á þá leið að hún hafi ráfað inn einn daginn, grönn og úfin. Hann sá aumur á henni og gaf henni að borða, en eftir það var eiginlega ekki aftur snúið og kisa hafði valið sér nýtt heimili. Hún var skírð Ágústa í höfuðið á eiganda Icewear sem heitir Ágúst Þór Eiríksson. Enn hefur hún ekki haldið á vit nýrra ævintýra og Icewear búðin er hennar yfirráðasvæði og heimili. 

 

Kata og Ágústa hafa myndað sterk tengsl, en Kata segir að kisu hafi ekki litist neitt á sig til að byrja með. „Það þarf að vinna sér inn traust, þegar kemur að Ágústu,“ segir Kata. Mynd: RH

Jóhann Ingi Davíðsson, verslunarstjóri Icewear á Akureyri, reyndi sitt besta til þess að aðstoða blaðamann við að ná myndum af hefðarkettinum Ágústu, sem hefur óbeit á myndatökum. Hér er verið að sækja kisunammið. Mynd: RH

Heldur tryggð við Icewear

„Ágústa er Icewearköttur í húð og hár, vegna þess að þegar nýju verslanirnar opnuðu í Amarohúsinu, garnbúðin Icemart og Icewear magasín, þá hefur hún vanið komur sínar þangað líka,“ segir Kata. „Hún tekur hring um nærumhverfið og búðirnar reglulega þó aðalstaðurinn hennar sé hérna, en til dæmis er starfsmaður í garnbúðinni sem situr oft og heklar, þar finnst Ágústu huggulegt að kúra sig og sofa í fanginu á henni á meðan. Hún er líka mikið hérna við hliðina, í Viking búðinni. Þar á hún körfu sem hún sefur oft í.“

Mikil díva og lætur ekki bjóða sér gamalt vatn

Kata Walankiewicz flutti til Íslands þegar hún var sjö ára, er hálf pólsk og hálf íslensk. Hún er búin að vinna í Icewear búðinni síðan árið 2021, en hún hugsar hvað mest um Ágústu í dag og þær eiga í sérstöku sambandi. „Ágústa er mjög mikill karakter,“ segir Kata. „Hún er tólf ára, frekar gömul og nennir ekki neinu veseni. Hún er mikil díva líka, vatn í skál er ekki nógu gott fyrir hana. Hún kemur inn í eldhús og horfir á mig, þá veit ég að hún er þyrst og þá skrúfa ég frá krananum. Hún drekkur bara ferskt vatn beint úr krana.“

 

Blaðamaður fór á stúfana með Kötu að leita að Ágústu til þess að taka myndir af henni. Það kom á daginn að hún var sofandi í körfunni sinni í Viking búðinni og kærði sig nákvæmlega ekki neitt um að vera trufluð. Mynd: RH

Ágústa var frekar úrill með að vera vakin, en það var huggun harmi gegn að það var Kata sem vakti hana en ekki túristi. Hér eru þær saman í Viking búðinni, þar sem Ágústa fær sér stundum lúr yfir daginn. Mynd: RH

Takmörkuð þolinmæði fyrir mannverum

Það liggur beinast við, að köttur sem kýs að búa í verslun þar sem mikið er um fólk, sé mannelskur og vilji athygli og klapp. Það á ekki við um Ágústu, hún er ekki mikið fyrir athygli og Kata segir að hún sé mjög vandlát þegar kemur að mannfólki. „Hún velur sér til dæmis starfsfólk sem hún leyfir að knúsa sig mest, taka sig upp og klóra sér, en við vorum ekkert sérstaklega góðar vinkonur strax,“ rifjar hún upp. Kata var alin upp í sveit og er mikil dýrakona, en hún þurfti alveg að hafa fyrir því að ná trausti Ágústu. 

Aðstoð í veikindum skiptu sköpum fyrir vináttuna

„Henni líkaði alls ekki við mig fyrst,“ segir Kata. „En einn veturinn þá lokaðist hún óvart úti yfir nótt og við fundum hana ekki daginn eftir. Ég leitaði og leitaði en án árangurs. Ég var ekki á vakt þegar hún kom loksins aftur, en þau hringdu í mig og ég kom strax. Hún var mjög grönn, skjálfandi og það lak úr nefinu á henni. Þegar hún neitaði kisunamminu þá vissi ég að það hlaut að vera eitthvað mikið að og fór með hana til dýralæknis. Það kom í ljós að hún var með nýrnastein og vegna aldurs voru nýrun með lélega starfsemi. Hún fékk lyf sem ég þurfti fyrst um sinn að pína ofan í hana, sem hún var alls ekki hrifin af. En þegar hún fór að finna að lyfin hjálpuðu, þá fannst mér eins og hún skildi að ég var bara að reyna að hjálpa og við höfum verið perluvinkonur síðan.“

 

Ágústa er flestum kunn, sem leggja leið sína oft í miðbæinn. Þar er hún oft á vappi og fylgist vel með öllu. Mynd: RH

Hefur gengið í gegnum ýmislegt

Ágústa hefur greinilega náð fleirum á sitt band í gegnum tíðina, en það er vitað að hún bjó á Hlíð áður fyrr, en það er ljóst að þessi kisa hefur upplifað eitt og annað. „Það sem ég heyrði varðandi tíma hennar á Hlíð, er að eigandi hennar hafi látist og hún hafi svo tengst nýjum eigendum sem hún missti líka. Hún hefur kannski fengið nóg af því, skiljanlega. Stundum kemur hingað kona sem þekkir Ágústu frá því að hún var að vinna á Hlíð,“ segir Kata. „Hún gefur henni alltaf stóran poka af harðfisk í jólagjöf.“

Það koma alveg dagar, þar sem Ágústa þarf meiri knús og ást heldur en aðra

„Talandi um jólin, þá reyndi ég að taka Ágústu með mér heim ein jólin, af því að ég vildi ekki að hún væri ein á meðan búðin er lokuð yfir hátíðarnar,“ segir Kata. „Hún var alls ekki ánægð með það og ég fór með hana aftur í búðina, kom þá bara reglulega og kíkti á hana og gaf henni að borða. Ég er hérna alla daga, er hérna í fullu starfi, þannig að ég þekki hana náið. Ég les hana frekar vel, veit oft hvað hún vill og hvað hún þarf. Ég hef reyndar stundum áhyggjur af því að koma í búðina einn daginn og hún sé dáin, hún er svo gömul. Hún er svo yndisleg að ég vona að hún lifi í tuttugu ár í viðbót!“

 

Það gustar af Icewear-dívunni, þar sem hún röltir inn í verslunina aftur, eftir útiveru og eftirlitsferð um bæinn. Á þessum tímapunkti var blaðamaðurinn farinn að fara ískyggilega í taugarnar á Ágústu, það fór alls ekki á milli mála. Mynd: RH

Á það til að flýja eða slá frá sér

„Það koma alveg dagar, þar sem Ágústa þarf meiri knús og ást heldur en aðra,“ segir Kata. „Þá er hún meira hjá okkur og leyfir okkur að koma mikið nálægt sér. En oftast er það þannig, að hún fær oft allt of mikla athygli frá túristunum og gestum búðarinnar, sem eru að reyna að klappa henni á meðan hún sefur eða eltir hana um búðina. Hún vill bara vera í friði fyrir þessu og á það alveg til að slá til fólks ef það er of pirrandi eða hlaupa í burtu. Hún reynir að sofa á teppi inn í djúpri hillu, þar sem túristarnir sjá hana ekki.“

Um tíma var Ágústa komin á vegferð áhrifavalds, ásamt kollegum sínum í Icewearbúðum í Reykjavík. Ekki að hennar frumkvæði, en það væri töluvert úr karakter að koma sér þannig viljandi í sviðsljósið. Enn eru til Facebook síðan 'Spottaði Ágústu' og Instagram síðan 'Cats of Icewear', en í verslunum í Reykjavík eru þær Ófelía og Sóla, sem eru líka Icewear kettir. Það er svolítið síðan að nýtt efni var sett inn á þessar síður, en þær eru ennþá lifandi og hægt að skoða.

Kattarhárin geta verið til leiðinda

Það eru einhverjir ókostir við það, að köttur skuli búa í fataverslun, en þegar rignir er Ágústa of fín með sig til þess að fara út. Þá situr hún á fötunum í hillum við gluggann og skilur eftir sig hár. „Við erum mikið að rúlla hár af ýmsu, og höfum alveg lent í því að fólk ætlar að kaupa eitthvað og það eru kattarhár á því,“ segir Kata. „En það er alltaf í góðu lagi og við rúllum þau bara af. Það eru bara smámunir miðað við gleðina sem fylgir því að hafa Ágústu hjá okkur.“ 

„Ágústa er æðislegur karakter, hún er bara eins og manneskja eiginlega,“ segir Kata að lokum. „Hún kann alveg á okkur og er voðalega ástúðleg þegar hana langar í kattanammi eða harðfisk, sem hún elskar. Við getum ekki sagt nei við hana, Ágústa fær alltaf það sem hana langar í.“

 

Kata var búin að segja blaðamanni, að þegar Ágústa setur eyrun aftur á bak með reiðisvip, sé hún búin að fá sig fullsadda af athygli. Nú er nóg komið og síðasta myndin tekin af þessari merkilegu kisu sem setur mikinn svip á verslunia sína og miðbæinn. Mynd: RH