Hvor hlutinn er 101 árs og hvor viðbótin?
Í síðustu pistlum í röðinni Hús dagsins hefur Arnór Bliki Hallmundsson fjallað um hús sem eiga aldarafmæli í ár og eru hönnuð af Sveinbirni Jónssyni. Fjögur þeirra eru á Oddeyri en nú er að komið að nafntoguðu stórhýsi, „sem reyndar reis af grunni fyrir 101 ári síðan, á mörkum Miðbæjar og Innbæjar, og hefur húsið stækkað um rúmlega helming á síðustu árum,“ segir í pistlinum sem akureyri.net birtir í dag. „Er þar er um svo vel heppnaða framkvæmd að ræða, að sá sem ekki vissi betur gæti vel haldið að viðbyggingin væri 101 árs hluti hússins og hið upprunalega, viðbótin!“
Húsið sem um ræðir er Hafnarstræti 67; Skjaldborg.
Arnór Bliki segir: „Um miðbik Hafnarstrætis liggur gatan í aflíðandi hækkun upp í snarbratta brekkuna þar sem standa Hafnarstræti 49 (Amtmannshúsið, Sýslumannshúsið, Hvammur), Gamli Barnaskólinn, Samkomuhúsið og Sjónarhæð. Við síðasttalda húsið tekur gatan að halla niður á við til norðurs og nokkurn veginn þar sem hækkunin hefst þeim megin stendur Skjaldborg, eða Hafnarstræti 67. Lóðir þessara húsa eru nokkuð víðlendar og mögulega hefur einhvern tíma verið gert ráð fyrir Hafnarstræti 51, 55, 59, 61 og 65. Hér var hinn landfræðilegi og menningarlegi miðbær á fyrri hluta 20. aldar, mitt á milli Oddeyrar og Akureyrar (Innbæjar) og hér voru skóli og samkomuhús bæjarins og vinsæll samkomustaður trúfélags.“
Pistill Arnórs Blika: Hafnarstræti 67; Skjaldborg