Fara í efni
Mannlíf

Hvernig sósa er alioli og hvað er majónes?

„Lengi hefur verið deilt um hvaðan alioli þessi þekkta hvítlaukssósa komi, því flestar þjóðir við Miðjarðarhafið gera tilkall til uppruna hennar. Víða hefur verið haldið fram að sósan sé frá Egyptalandi hinu forna og hafi borist þaðan með Rómverjum, en engar ritaðar heimildir styðja slíkar vangaveltur. Víst er þó að sósan er forn að uppruna og að Spánverjar héldu í ríkara mæli en aðrir í upprunalegu útgáfuna – og gera sums staðar enn.“

Þannig hefst matarpistill Þráins Lárussonar sem akureyri.net birtir í dag.

Alioli, þessi ómótstæðilega sósa að margra mati, er í daglegu tali oft nefnd hvítlauksmajónes. „Á matseðlum, í uppskriftum og í almennri umræðu er hugtakið notað yfir mjúka, ljósleita sósu sem líkist majónesi að áferð en hefur afgerandi hvítlauksbragð sem sérkenni. Nafnið hvítlauksmajónes virðist rökrétt en er samt grundvallarmisskilningur,“ segir Þráinn í þessum skemmtilega og stórfróðlega pistli.

  • Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.

Pistill Þráins í dag: Alioli – sósan sem allir vilja eigna sér