Fara í efni
Mannlíf

Hreyfanleika er hægt að bæta á öllum aldri

„Hreyfanleiki (mobility) er getan til þess að hreyfa líkamann með stjórn og stöðugleika í gegnum sitt eðlilega hreyfisvið. Hann er grunnur að því hvernig við hreyfum okkur, hvort sem það er í daglegu lífi, vinnu eða íþróttum.“

Þannig hefst nýr heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur. Hún og Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast aðra hverja viku.

Hún segir hreyfanleika og liðleika oft ruglað saman. „Á einfaldastan hátt má segja að liðleiki (e.flexibility) sé hversu mikið vöðvarnir þínir geta teygst en hreyfanleiki (mobility) er hversu vel þú getur stjórnað hreyfingu,“ segir hún.

 

„Þú gætir verið liðug þegar þú teygir þig í kyrrstöðu. En hreyfanleikinn kemur í ljós þegar þú þarft að snúa þér, beygja þig og lyfta í sömu hreyfingu, til dæmis þegar þú þarft að lyfta einhverju upp af gólfinu? Það er þar sem hreyfanleiki skiptir máli.

Liðleiki segir til um hvort þú kemst í stöðu. Hreyfanleiki segir til um hvort þú getur stjórnað henni.

Hversu vel hreyfist þú í raun og veru í daglegu lífi? Í einföldum hreyfingum eins og að beygja þig niður, klæða þig í sokka, setjast í bíl eða ná í eitthvað upp í skáp.“

 

Pistill Guðrúnar: Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?