Fara í efni
Mannlíf

Hrekkjavökutónleikar blásarasveitanna í Hofi

Árlegir Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri hafa notið mikilla vinsælda og nú er komið að þeim næstu. Þeir verða haldnir í dag, miðvikudag 28. október klukkan 18 í Hamraborg, stóra salnum í Hofi.
 
„Draugasögukonan Urður Bergsdóttir flytur splunkunýja og ógnvekjandi hrekkjavökusögu sem vefur sig utan um taugatrekkjandi tónlist blásarasveitanna þriggja,“ segir í tilkynningu frá skólanum. „Hræðilega metnaðarfullar skreytingar munu prýða draugahúsið Hof og eru tónleikarnir ómissandi upplifun ef þið hafið hugsað ykkur að komast í hrekkjavökugírinn.“
 
Í tilkynningu frá Tónlistarskólanum segir einnig:
 
  • Ókeypis aðgangur og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
  • Hátt í 70 nemendur tónlistarskólans taka þátt í þessum óhugnanlega skemmtilegu tónleikum fyrir alla fjölskylduna.
  • Hlökkum til að sjá ykkur – ef þið þorið!
  • Stjórnendur eru: Sóley Björk Einarsdóttir og Emil Þorri Emilsson
  • Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta í sínum eigin hrekkjavökuklæðnaði.