Fara í efni
Mannlíf

Hrekkjavökustemningin tekin lengra í Goblin

Spilamiðstöðin Goblin verður með viðburði í tengslum við hrekkjavökuna, þau taka hrekkjavökustemninguna aðeins lengra, eins og þau orða það. Spilaviðburðir verða í boði bæði í kvöld og á morgun.

Föstudagur 27. október

  • Friday Night Magic, spilað verður Innistrad Midnight Hunt sealed.
  • Tólf sæti eru í boði og spilaðar 3-4 umferðir. Verðlaun í boði fyrir sigurvegara og þátttökuverðlaun fyrir alla keppendur.

Laugardagur 28. október

  • Sérstakt unglingahryllings D&D, aðeins fyrir 7.-10. Bekk, sex sæti í boði.
  • Hrekkjavökuhryllings D&D, aðeins fyrir 16 ára og eldri, sex sæti í boði. Glaðningur fyrir þátttakendur sem mæta í búningi.
  • Borðspilapartí þar sem hægt verður að velja á milli þess að spila tvö spil, Mysterium eða Betrayal At House On The Hill. Spilin verða undir handleiðslu sérfræðings frá Goblin, sem kennir þátttakendum að spila og aðstoðar í gegnum spilin. Aðeins fjögur sæti eru í boði fyrir hvort spil. Glaðningur fyrir þátttakendur sem mæta í búningi.

Upplýsingar og skráning á viðburðavefnum á goblin.is.

Akureyri.net fjallaði um spilamiðstöðina Goblin í nóvember í fyrra.