Fara í efni
Mannlíf

„Hræðilegir“ tónleikar á Hrekkjavöku – MYNDIR

Árlegir hrekkjavökutónleikar blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri fóru fram á miðvikudaginn í troðfullri Hamraborg, stóra salnum í menningarhúsinu Hofi, þar sem allar þrjár sveitir skólans spiluðu nokkur lög hver og í lokin kom allur hópurinn saman í lokalagi tónleikanna. Urður Bergsdóttir var sögumaður kvöldsins. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til enda allt lagt í sölurnar til að gera tónleikana sem glæsilegasta, segir á vef skólans. 

Sindri Swan myndaði tónleikana fyrir skólann. Hér að neðan má sjá nokkrar þeirra en fleiri myndir eru hér á vef Tónlistarskólans.