Fara í efni
Mannlíf

Hörður sýnir 19. aldar ljósmyndunartækni

Nútímamaðurinn Hörður Geirsson ljósmyndasérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri, sem mun sýna 19. aldar ljósmyndatækni. Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson.

Viltu fylgjast með 19. aldar ljósmyndara að störfum? Næstu tvo daga, á föstudag og laugardag, gefst einstakt tækifæri til þess að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með ljósmyndara taka ljósmyndir og framkalla með efnum og aðferðum sem notaðar voru um 1850. Þetta kemur fram á vef Minjasafnsins á Akureyri.

Hörður Geirsson, ljósmyndasérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri, mun feta í spor Jóns Chr. Stefánssonar, timburmeistara og myndasmiðs, sem fyrstur Íslendinga tók ljósmyndir með votplötutækni sem hann lærði í Kaupmannahöfn 1858.

Hörður hefur undanfarin ár numið 19. aldar ljósmyndafræði og gert tilraunir með slíka tækni sem kölluð er votplötutækni (wetplate) eða collodion. Notast er við framandi efni og myndin framkölluð á glerplötu. Hörður hefur smíða eigin myndavél frá grunni ásamt færanlegu myrkraherbergi og myrkrakassa sem hann hefur smíðað.

Sýnikennslan fer fram fyrir utan Nonnahús föstudaginn 20. ágúst og laugardaginn 21. ágúst á milli kl. 13:00 og 14:00 ef veður leyfir. Allir velkomnir en beðnir um að virða sóttvarnir og fjarlægðarmörk.