Fara í efni
Mannlíf

Hof: Einn strigi, eitt tækifæri, ein mynd

Óvenjuleg myndlistarsýning var opnuð í Hofi í vikunni. Þar sýnir strákaklúbbur félagsmiðstöðva Akureyrar (FÉLAK), hópur 13-16 ára stráka úr fimm grunnskólum á Akureyri.

„Verkefnið Einn strigi, eitt tækifæri, ein mynd fæddist í vor. Tilgangurinn er að sýna fram á að allir geti skapað og búið til listaverk. Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna fengu strákarnir engan undirbúning og aðeins eitt tækifæri til að mála listaverk. Afraksturinn var frábær þar sem myndirnar koma oft beint frá hjartanu, óheflaðar og mjög fjölbreyttar,“ segir á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar.

Sýningin stendur til 10. maí 2021 og er hluti af Barnamenningarhátíðinni á Akureyri.