Hlynur í Norðymbralandi og annar á Oddeyrinni
Í vikulegum pistli í röðinni Tré vikunnar fjallar Sigurður Arnarson um tvö tré af tegund sem heitir garðahlynur, Acer pseudoplatanus. „Bæði trén standa við gamla veggi. Annar hlynurinn er í Norðymbralandi í Englandi, hinn á Oddeyrinni á Akureyri,“ skrifar Sigurður.
Sigurður veltir því upp í pistlinum hvort sjálfsagt sé að fella hvaða tré sem er. Eru tré minna virði á Íslandi en til dæmis á Englandi?
Haustið 2023 var frægt 120 ára gamalt tré – tré ársins í Englandi árið 2016 – fellt án sýnilegrar ástæðu. „Lögreglan í Norðymbralandi lýsti því strax yfir að um skemmdarverk (an act of vandalism) hefði verið að ræða og hóf viðamikla rannsókn. Síðar kom í ljós að þarna höfðu tveir menn á fertugsaldri verið að verki án sýnilegrar ástæðu. Þeir voru kærðir fyrir verknaðinn og 15. júlí 2025 voru þeir báðir dæmdir í fjögra ára og þriggja mánuða fangelsi fyrir skemmdarverkið,“ skrifar hann. Myndband var til af verknaðinum og staðfesting á að bæði sími og bíll annars sakbornings hafi verið á staðnum þegar tréð var fellt. Hvorugur sakborninga kannaðist neitt við neitt en kenndu hvor öðrum um. Það dugði ekki sem vörn í málinu.
Garðahlynurinn við Hadríanusarvegginn, sem fjallað er um að ofan, var og er heimsfrægt tré, segir Sigurður. „Færri vita að á Oddeyrinni á Akureyri stendur garðahlynur við gamlan og að hluta til fallinn vegg. Hvorki tréð né veggurinn hafa náð sama aldri og suður í Norðymbralandi, enda var veggurinn þar syðra byggður áður en Ísland var numið og tréð var eldra en upphaf trjáræktar hér á landi. Þó munar ekki nema um fjórum áratugum á aldri trjánna.“
Hlynurinn á Oddeyrinni stendur á horni Eyrarvegs og Ránargötu og tilheyrir garðinum við Eyrarveg 31. „Hlynurinn er hinn fegursti og setur mikinn svip á umhverfi sitt. “
Meira hér: Hlyntré við veggi