Fara í efni
Mannlíf

Hlynur fyrstur á fimm höggum undir pari

Hlynur Bergsson slær af fyrsta teig í morgun. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Hlynur Bergsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er með forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag af fjórum á Íslandsmótinu í golfi. Hlynur lék á 66 höggum, fimm höggum undir pari vallarins. Hann jafnaði vallarmetið en þetta er reyndar aðeins annað mótið síðan tveimur teigum var breytt – vallarmetið fyrir þá breytingu var 64 högg.

Þrír eru á tveim höggum undir pari vallarins eftir fyrstu 18 holurnar, Jóhannes Guðmundsson og Dagbjartur Sigurbrandsson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, og Rúnar Arnórsson, Keili.

Tumi Hrafn Kúld lék best akureyrsku karlanna í dag; fór hringinn á 70 höggum, einu undir pari vallarins.

Ekki hafa allir keppendur lokið fyrsta hring, en staða efstu manna breytist vart úr þessu.

Smellið hér til að sjá skor allra þátttakenda.