Fara í efni
Mannlíf

Hlaupa sex maraþon á sex dögum fyrir Kraft

Snyrtilegir hlaupagarpar! Hlaupahópurinn HHHC

Hlaupahópur sem kallar sig Boss HHHC hyggst hlaupa sex maraþon á jafn mörgum dögum í þessum mánuði, frá Akureyri til Reykjavíkur. Hlaupið er fyrir Kraft í minningu Ingu Hrundar Kjartansdóttur, sem lést í fyrra aðeins 37 ára af völdum krabbameins.

„Mánudaginn 14. ágúst verður lagt í hann frá Akureyri og föstudaginn 18. ágúst verður hópurinn kominn til Reykjavíkur. Þetta samsvarar 5 maraþonhlaupum á fimm dögum fyrir hvern hlaupara í hópnum. Sjötta maraþon hópsins verður svo hið eina sanna Reykjavíkur maraþon Íslandsbanka þann 19. ágúst,“ segir í kynningu á hópnum á vef Reykjavíkurmaraþons.

  • Hvað er Kraftur? Sjá hér upplýsingar um það.

„Við hlaupum fyrir Kraft og í minningu Ingu Hrundar Kjartansdóttur, sem lést í fyrra aðeins 37 ára af völdum krabbameins. Inga Hrund var eiginkona Rúnars Marinós Ragnarssonar, sjúkraþjálfara og félaga okkar, og móðir tveggja ungra dætra. Hennar er sárt saknað af öllum en minning hennar er björt og falleg. Við viljum að auki tileinka hlaupið okkar öllum ungum fjölskyldum sem hafa þurft að glíma við krabbamein.“

Hópurinn segist stoltur af því að hlaupa fyrir Kraft, þar sé unnið ómetanlegt starf og fólk þar á bæ hafi reynst „ótal mörgum fjölskyldum styrkur í gegnum erfiða baráttu við krabbann. Við viljum þakka stuðningsaðilum okkar fyrir magnaða aðstoð og margvísleg framlög til að gera 6 maraþon á 6 dögum möguleg.“

Síðan segir: „Við munum leggja okkur alla fram og snyrtilegur klæðnaður verður alltaf í fyrirrúmi (Hæ Boss!). Að þessu sinni verður hraðinn ekki aðalatriði. Við minnum samt á að HHHC er hraðasti hlaupahópur landsins og um leið sá fallegasti, a.m.k. ef við erum spurðir!“