Mannlíf
Hinsegin hátíðin hefst í dag
18.06.2026 kl. 11:00
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.-21. júní en markmið hennar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Norðurlandi eystra ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin dögum í Hrísey.
- Í dag, fimmtudaginn 18. júní eru ýmsir viðburðir á dagskrá í Eyjafjarðarsveit. Á bókasafninu kl. 14-16 verður fjölskylduföndur og lifandi bókakaffi, þar sem hægt verður að eiga í góðu og opnu spjalli við hinsegin einstaklinga. Kaffi og kleinur í boði. Þá verður regnbogasund í sundlauginni á Hrafnagili milli kl. 16 og 17 og hljómsveitin Tár leikur fyrir gesti Skógarbaðanna kl. 20:30.
- Föstudaginn 19. júní má nefna að boðið verður upp á hinsegin sögugöngu frá Minjasafnskirkjunni kl. 16:30 og í Svarta kassanum í Hofi kl. 20 verður dagskrá sem ber heitið Í fótspor þeirra. Þetta eru tónleikar og sögukvöld sem tengjast einnig kvenréttindadeginum.
- Laugardaginn 20. júní verður gleðiganga og hátíðardagskrá í Hrísey, þar sem verður m.a. regnbogamessa kl. 11 og að loknum gleðiakstri á dráttarvélum kl. 14 verður fjölbreytt dagskrá á útisvæðinu. Milli kl. 16 og 18 verður sundlaugardiskó fyrir börnin og Ukulellur halda tónleika um kvöldið.
- Hátíðinni lýkur sunnudaginn 21. júní með bingói kl. 14 í Rósenborg til styrktar starfsemi Hinsegin Norðurlands. Húsið verður opnað kl. 13:30 og þar verður einnig boðið upp á kaffihlaðborð á vægu verði.
Dagskrá Hinsegin hátíðarinnar í heild má sjá hér á vefsíðu hátíðarinnar.