Fara í efni
Mannlíf

Himinlifandi – nýtt leikið barnaefni á N4

Edda og Abbi - Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson. Ljósmyndir: Sindri Swan.

Glænýtt, leikið barnaefni verður frumsýnt á sjónvarpsstöðinni N4 á sunnudaginn. Þá hefst 12 þátta röð, Himinlifandi, sem unnin er í samstarfi við Þjóðkirkjuna - Biskupsstofu. Þetta mun fyrsta leikna barnaefnið framleitt af fagfólki sem búsett er utan borgarhornsins.

„Það er spilað á allar tilfinningar í þáttunum, bæði gleði og grátur. Umfjöllunarefnið er byggt á gildum kristinnar trúar og þessum mannlegu spurningar sem við erum öll að velta fyrir okkur, eins og t.d. hvort við eigum alltaf að segja satt, hvað okkur finnst, hvernig við getum tekist á við óöryggi og fleira,” segir Stefán Friðrik Friðriksson, framleiðslu- og markaðsstjóri á N4.

Prestshjón aðal leikararnir

Það eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, prestshjón á Möðruvöllum í Hörgárdal, sem fara með aðalhlutverkin í þáttunum. Þau skrifuðu einnig handritið en leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir skapaði „hina ævintýralegu leikmynd sem prýðir þættina en þættirnir voru teknir upp í Hlöðinni við Litla Garð á Akureyri,“ eins og segir í tilkynningu.

Stórar spurningar en líka sprell

Aðalpersónur Himinlifandi eru þau Edda og Abbi sem lifa skrautlegu lífi í koti sínu. Með aðstoð Ráðavélarinnar takast þau á við stóru spurningarnar í lífinu en alltaf er þó stutt í fíflagang og sprell, segir í tilkynningu.

„Það er ekki framleitt mikið af leiknu íslensku barnaefni hér á landi svo þetta eru töluverð tíðindi. Þetta er eitt af stærstu verkefnunum sem við á N4 höfum tekið að okkur og erum við mjög ánægð með samstarfið við Þjóðkirkjuna og vonum að áhorfendur verði himinlifandi með útkomuna,” segir Stefán Friðrik Friðriksson.

Fyrsti þáttur af Himinlifandi verður frumsýndur næsta sunnudag, 3. október, kl. 11.00.

Smellið hér til að sjá stiklu úr þáttunum