Heilsupistill Guðrúnar: Flækjum ekki hlutina
„Þegar okkur líður ekki alveg nógu vel eigum við það til að leita að stórum skýringum. Við veltum fyrir okkur hvort við þurfum að gera stórtækar breytingar á lífinu og hugurinn fer auðveldlega í að greina allt í öreindir til að finna svarið.“
Þetta segir Guðrún Arngrímsdóttir í nýjum heilsupistli. Guðrún og Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast annan hvern þriðjudag.
Guðrún segir vissulega ekki einfaldar skýringar á öllum tilfinningum eða erfiðum tímabilum. „Lífið er flókið og stundum þarf meiri tíma, dýpri vinnu og stuðning til að takast á við hlutina og aðstæður sem koma upp í lífinu. En áður en við leitum langt getur verið gott að líta á grunninn,“ segir hún. „Hreyfing, svefn, næring, ferskt loft og tengsl við annað fólk eru einfaldar en öflugar stoðir sem halda utan um líðan okkar á hverjum degi.“
Pistill Guðrúnar: Flækjum ekki hlutina