Mannlíf
GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ!
17.06.2026 kl. 06:00
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Dagskrá þjóðhátíðardagsins á Akureyri verður með nokkuð hefðbundnu sniði í dag. Hátíðardagskrá og fjölskylduskemmtun verður í Lystigarðinum frá kl. 13 til 16 og ýmiss konar afþreying verður í boði á MA-túninu og þar í grennd til kl. 17. Þá verður boðið upp á siglingu með Húna II síðdegis.
Helstu atriði í dagskrá hátíðardagsins:
- 11:00 – Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum.
- 12:30 – Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti og heldur suður í Lystigarð.
- 13:00-14:00 – Hátíðardagskrá í Lystigarðinum með fánahyllingu, bænagjörð, tónlistarflutningi og ávörpum Fjallkonu og bæjarstjóra.
- 13:45-16:00 – Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum. Dans- og söngatriði, Vilhjálmur B. Bragason bæjarlistamaður stýrir skemmtun og Hvolpasveitin kemur í heimsókn.
- 13:30-17:00 – Afþreying á MA-túni og víðar. Hoppukastalar, andlitsmálning, skátatívolí, matarvagnar og margt fleira.
- 16:30 – Sigling með Húna II. Siglt er frá Fiskihöfninni norðan við ÚA, beint neðan við Hagkaup. Siglingin er 45 mínútna löng. Bætt verður við annarri siglingu kl. 17.30 ef þörf verður á.
Dagskrá þjóðhátíðardagsins á Akureyri í heild má sjá hér og þar eru einnig upplýsingar um akstursleið Blómabílsins og bílastæði í grennd við hátíðarsvæðið. Bæjarbúar eru þó hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá svæðinu.
- Hér má sjá yfirlitsmynd af Lystigarðinum og nágrenni, þar sem hátíðardagskráin fer fram.
