Fara í efni
Mannlíf

Hátíðarstemning 17. júní – MYNDIR

Mynd: Þorgeir Baldursson

Fjölmenni kom saman í Lystigarðinum í gær þegar Akureyringar héldu upp á þjóðhátíðardaginn í þokkalegu veðri.

Eftir skrúðgöngu Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar frá gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti hófust hátíðarhöld í Lystigarðinum með fánahyllingu og tónlist; lúðrasveitin lék undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur, þá flutti séra Jóhanna Gísladóttir bænagjörð og blessun, kór eldri borgara – Í fínu formi – söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur, Anna María Antonsdóttir, nýstúdent frá MA, flutti ávarp fjallkonunnar og Berglind Ósk Guðmundsdóttir ávarpaði viðstadda.

Að formlegri dagskrá lokinni tók við fjölskylduskemmtun þar sem fram komu meðal annars Vilhjálmur B. Bragason bæjarlistamaður Akureyrar, dansarar frá Steps og DSA, Mahaut Matharel sumarlistamaður Akureyrar, söngkonan unga Karólína Orradóttir, Jónsi – Jón Jósep Snæbjörnsson – og Erna Hrönn og að lokum Hvolpasveitin.

Á MA-túni og víðar var fjölbreytt afþreying, hoppukastalar, andlitsmálning, frisbígolf, götukörfubolti, pokavarp, skotfimi með laserbyssum, skátatívolí og fjölbreytt úrval matarvagna. Þá var boðið upp á siglingu með Húna II á Pollinum venju samkvæmt.