Hamborgarinn lagar sig að hverri kynslóð
„Það er vart til réttur sem hefur haft jafn djúp áhrif á nútímann og þessi einfaldi biti: hakkað nautakjöt í brauðloku. Hann varð heimsfrægur undir nafni sem bendir til Þýskalands, en fæddist í raun á götum Bandaríkjanna. Hann varð tákn hraða, þæginda og frelsis, en ber líka með sér sögu innflytjenda, stéttaskiptingar og heims sem lærði að borða á hlaupum.“
Þannig hefst fjórði matarpistill Þráins Lárussonar fyrir akureyri.net – að þessu sinni fjallar Þráinn um sögu hamborgarans.
Upphafið liggur að öllum líkindum í Hamborg á 19. öld, þar sem hakkað nautakjöt var vinsælt meðal verkafólks og sjómanna. Þegar þýskir innflytjendur tóku skipin til Ellis Island fylgdi þessi réttur með í farteskinu; einfaldur, næringarríkur og auðveldur. Í iðnvæddum borgum Bandaríkjanna, þar sem verksmiðjutíminn var mældur í mínútum, færðist Hamburg Steak, eins og rétturinn kallaðist, út á götuhornin ar sem hugvitsamir götusalar tóku upp á því að leggja buffið milli tveggja brauðsneiða, svo auðveldara væri að borða það á ferðinni.
Það var því á götunni sem galdurinn varð.
Nýjasti pistill Þráins: Saga hamborgarans – frá hakkabuffi til heimsveldis