Mannlíf
Hæstu tré í heimi á árum áður?
26.08.2026 kl. 10:00
Ættkvísl gífurviða, eða Eucalyptus eins og hún heitir á máli líffræðinnar, er stór og fjölbreytt. Stærsta tré frændgarðsins, kóngagífur eða Eucalyptus regnans F. Muell., er með allra hæstu trjám í heimi og gamlar sagnir eru til um enn hærri tré af þessari tegund sem voru felld á sínum tíma. Þannig var auðveldara að mæla þau. Sumir segja að þau hafi verið hæstu tré í heimi á árum áður.
Þannig hefst vikulegur pistill Sigurðar Arnarsonar í röðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. Sigurður heldur áfram:
Ef til vill nær kóngagífur aftur þeirri stöðu í náinni framtíð. Kóngagífur er það tré sem ber höfuð, herðar og laufkrónu yfir alla aðra gífurviði í heiminum og er sannkallaður konungur ástralskra skóga. Tré vikunnar er kóngagífur.
- Meira hér: Kóngagífur og fleiri risar