Fara í efni
Mannlíf

Gunnar Frímanns fékk heiðursviðurkenningu

Gunnar Frímannsson sjálfboðaliði Eyjafjarðardeildar fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi þann 4. maí . Þetta kemur fram á Facebook síðu Eyjafjarðardeildarinnar.

Í umsögn um Gunnar segir meðal annars:

„Gunnar Frímannsson hefur verið sjálfboðaliði Rauða krossins í hartnær 24 ár. Á þeim tíma hefur hann tekið þátt í fjölmörgum verkefnum félagsins, má þar m.a nefna flóttamannaverkefni, neyðarvarnir, íslenskuþjálfun og fataverkefni. Hann hefur jafnframt gegnt ýmsum trúnaðarstöfum fyrir félagið, en hann var í stjórn Rauða krossins á Íslandi 2006 – 2012, stjórn Akureyrardeildar Rauða krossins 2001 – 2006 og sem varamaður 2007 – 2012. Hann var svo formaður Rauða krossins við Eyjafjörð 2017 – 2023. Hann hefur jafnframt setið í kjörnefnd Rauða krossins á Íslandi frá 2020. Gunnar er jákvæður, traustur og afar bóngóður sjálfboðaliði.”