„Gullvængurinn“ kominn á Mótorhjólasafnið
Það getur verið erfitt að kveðja hlut sem hefur fylgt manni í áratugi. Hjörtur Þór Guðbjartsson, fyrrverandi togarasjómaður á Skagaströnd, ákvað þó að lokum að láta Honda GoldWing 1500 hjólið sitt fara eftir 38 ára samfylgd. Hann gat þó ekki hugsað sér að selja hjólið heldur gaf hann það Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri.
Á vefsíðu Tíunnar, Bifhjólaklúbbs Norðuramts, kemur fram að Hjörtur keypti hjólið árið 1988 og var það þá fyrsta árgerð Honda Goldwing 1500 sem flutt var til Íslands. Á sínum tíma vöktu kaupin talsverða athygli, enda um flagghjól Honda verksmiðjanna að ræða, og í Tímanum var hjólið meðal annars sagt vera „dýrasta mótorhjól sem sést hefur á Íslandi“.

Það kallaði á uppsláttarfrétt í Tímanum þegar Hjörtur festi kaup á „dýrasta mótorhjól sem sést hefur á Íslandi.“
Núna 38 árum síðar hafði Hjörtur samband við Mótorhjólasafnið. Hann kvaðst hættur að nota hjólið, þótt það væri enn í góðu ástandi og nýskoðað, en sagðist ekki hafa getað hugsað sér að selja það. Honum fannst því viðeigandi að gefa safninu hjólið svo að fleiri gætu notið þess að sjá það.

Gullvængurinn glæsilegi kominn á Mótorhjólasafnið.
Hjólinu hefur verið ekið um 85 þúsund kílómetra og er að sögn Hjartar í mjög góðu ástandi. Hann segir aðeins einu sinni hafa misst það á hliðina - og það meira að segja í kyrrstöðu. Það gerðist við Grímsstaði á Fjöllum um 1990 þegar Hjörtur og félagar hans voru á ferðalagi um landið og ákváðu að fara um lélegan malarveg að Dettifossi austan megin. Hjólið slapp alveg við skemmdir.
Tengsl Hjartar við Mótorhjólasafn Íslands eru jafnframt persónuleg, því hann var mikill vinur Heiðars Jóhannssonar, Snigils #10, en safnið á Akureyri var í upphafi byggt upp í kringum mótorhjólasafn hans.

„Gullvængurinn er glæsileg viðbót við safn Mótorhjólasafns Íslands. Hjólið er ekki aðeins áhugavert vegna stærðar sinnar og sögu Honda-verksmiðjanna, heldur einnig vegna persónulegrar sögu Hjartar og þeirra 38 ára sem hann átti það. Slíkar gjafir hafa mikið gildi fyrir varðveislu mótorhjólasögunnar á Íslandi og gefa komandi kynslóðum tækifæri til að sjá og kynnast merkilegum farartækjum sem tengjast íslensku samfélagi og ferðamenningu,“ segir á vef Tíunnar en Tían er hollvinafélag Mótorhjólasafnsins.
Mótorhjólasafn Íslands er opið daglega á sumrin en á veturna um helgar kl. 13-16.