Gull og gersemar á sjóræningjadaginn
Kafað var eftir gulli og gersemum í Glerárlaug fyrir fáeinum dögum – með mjög góðum árangri! Þar voru á ferð nemendur sundskóla Óðins, foreldrar þeirra og ef til vill aðrir forráðamenn, á árlegum sjóræningjadegi. Líklega er um að ræða vinsælasta dag skólaársins; allir skemmtu sér í það minnsta afar vel á meðan akureyri.net leit við.
Dýrleif Skjóldal, sem stjórnað hefur skólanum í tæpa þrjá áratugi fyrir sundfélagið, klæddi sig upp á í tilefni dagsins og glatt var á hjalla. Það er leikur að læra, var sagt í eina tíð, og á án nokkurs vafa við í þessu tilfelli. Eða kann einhver skemmtilegri leið fyrir börn til þess að æfa sig í að kafa en að leita að gulli, gimsteinum og öðrum verðmætum í leiðinni? Gott ef Dilla nefndi ekki að krakkarnir hefðu haft meira en 100 kíló upp úr krafsinu.