Fara í efni
Mannlíf

Grænfáninn í níunda skipti til Síðuskóla

Mynd frá Síðuskóla

Síðuskóli fékk í gær Grænfánann afhentan í níunda skipti við hátíðlega athöfn í íþróttasal skólans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri, flutti ávarp og nemendur í umhverfisnefnd kynntu Samgöngusáttmála Síðuskóla sem gerður var í vetur. Nemendur í 4. bekk sungu lag og Síðuskólasöngurinn var sunginn.

  • Hvað er Grænfáninn? Smellið hér til að sjá allt um hann. 

Á vef Akureyrarbæjar segir að í vetur hafi verið haldin myndasamkeppni til að hanna skilti fyrir bílastæði og sleppisvæði skólans. „Tilgangurinn er að minna þá sem koma á bíl að drepa á honum meðan beðið er við skólann. Tvær myndir voru valdar, skilti gerð og verða þau sett á bílastæði skólans á næstunni. Þessi skilti voru sýnd á hátíðinni í dag.“

Það var Rán Þórarinsdóttir, fulltrúi Landverndar, sem afhenti skólanum viðurkenningarskjal og umhverfisnefnd tók við Grænfánanum. Að lokum var fáninn dreginn að húni.

Fleiri myndir frá afhendingu Grænfánans