Fara í efni
Mannlíf

Götugangan fer fram í fjórða sinn í dag

Unnar Vilhjálmsson (t.v.) ræsir Götugönguna 2025. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Götugangan verður haldin í fjórða sinn á Akureyri í dag, sunnudaginn 13. september og hefst klukkan 13 við Hof. Gangan er hluti af Evrópsku samgönguvikunni og er göngufólki á öllum aldri velkomið að taka þátt. Gengin verður tæplega fimm kílómetra leið meðfram Pollinum. Þátttaka er ókeypis og áhersla lögð á hreyfingu, útiveru og samveru.

Rásnúmer og tímataka verða í boði fyrir þátttakendur 12 ára og yngri og 60 ára og eldri. Afhending rásnúmera fyrir þessa hópa fer fram í Hofi í dag klukkan 10-12.

Gangan hefst við Hof þar sem bæjarstjóri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, flytur stutt ávarp og Unnar Vilhjálmsson sér um upphitun áður en lagt verður af stað í suðurátt. Stígnum meðfram Drottningarbraut verður fylgt og síðan beygt til austurs meðfram Leiruvegi. Þegar leiðin er hálfnuð er snúið við og sama leið gengin til baka. Brautarverðir verða á leiðinni til að vísa veginn og hvetja göngufólk áfram. 

Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Götugöngunnar.