Fara í efni
Mannlíf

Gísli leggur til söfnun: Óviðunandi hljómburður 

Gísli Sigurgeirsson fyrrverandi fréttamaður hvetur til þess, í grein sem akureyri.net birtir í dag, að efnt verði til fjársöfnunar til þess að bæta hljómburð í Akureyrarkirkju. Hann segir ástandið algjörlega óviðunandi. „Ég setti klausu um þetta inn á „sveitasímann“ í vikunni og þar hafa á annað hundrað manns tekið undir mín sjónarmið. Margir þeirra segjast hættir að sækja kirkjuna vegna þessa, þeir skilji ekki hvað sagt er,“ skrifar Gísli.

Mikil og stór verkefni bíða við endurbætur og viðhald kirkjunnar en Gísla finnst mest aðkallandi að bæta hljómburðinn. „Það verður að bæta úr þessu og hefja verkið strax. Ég veit að kirkjan okkar býr ekki að digrum sjóðum. Þess vegna legg ég til að farið verði í fjársöfnun,“ skrifar Gísli. „Ég veit að einstaklingar og fyrirtæki eru til með að veita þessu máli lið.“

Grein Gísla Sigurgeirssonar: Hljómburður í Matthíasarkirkju