Mannlíf
Gildagur verður í Listagilinu á morgun
02.07.2021 kl. 06:00

Í tilefni Listasumars hefur Listasafnið á Akureyri sett upp útilistaverkið „2010 Þjóðfundarmiði – Ekki kjafta ykkur frá niðurstöðum stjórnlagaþings“ eftir Libiu Castro, Ólaf Ólafsson og Töfrateymið. Verkið, sem nú má sjá á framhlið Listasafnsins, stendur út Listasumar eða til 30. júlí næstkomandi.
Gildagur verður í Listagilinu og í tengslum við það á morgun, laugardagi, á milli klukkan 12.00 og 17.00. Mjög fjölbreytt dagskrá verður í Gilinu og því verður lokað fyrir bílaumferð á meðan dagskráin stendur yfir.
Að þessu sinni eru helstu viðburðir þessir, samkvæmt tilkynningu:
- Listasafnið býður í heimsókn og þar standa nú margar, mismunandi og spennandi sýningar.
- Kaffihúsið Ketilkaffi í Listasafninu hefur á boðstólum BBQ veislu.
- Í Deiglunni er sýning Aðalheiðar Sigursveinsdóttur, Samtal.
- Fornbókabúðin Fróði býður upp á póstkort og listaverk og þar verður líka sérstakt sumartilboð á völdum bókum.
- Ótrúlegt úrval af hönnunarvörum verður í Sjoppunni, minnstu forstofuverslun landsins.
- Grímugerð er í boði í Rösk í Listasafnshúsinu.
- Á Grillstofunni verður hægt að spreyta sig í pool, pílu eða karaoke.
- Í Garni í gangi verður sýning á prjónahönnun Guðlaugar Svölu Kristjánsdóttur.
- Í Mjólkurbúðinni verður sýning Sunnu Sigfríðardóttir, Allar hugmyndir.
- Flóamarkaður verður í miðju Gilinu.
- Sara Björg Bjarnadóttir opnar sýninguna Dæmi um titil: Sneiðar í Kaktusi.
Í tengslum við Gildaginn verður líka kynning á Pastel-ritröðinni í Flóru, Hannyrðapönk í almenningsrými í Hofi og einnig tónleikar Ingibjargar Turchi og hljómsveitar hennar, einnig í Hofi.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Gildagsins - smellið hér til að fara þangað.