Mannlíf
Gengið af göflunum – til góðs – með slökkviliðinu
14.08.2026 kl. 19:00
Slökkviliðsmenn á Akureyri þegar þeir gengu til góðs fyrir nokkrum árum. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Liðsmenn Slökkviliðs Akureyrar og hjólreiðagarpurinn og sögukennarinn Arnór Bliki Hallmundsson – góðvinur lesenda akureyri.net sem höfundur pistlanna vinsælu um Hús dagsins – fara Stóra Eyjafjarðarhringinn á morgun, laugardag. Þeir ætla að ganga (reyndar hlaupa) og hjóla, af göflunum – en vitaskuld til góðs og allir eru velkomnir að slást í för með þeim
Slökkviliðsmenn hafa gengið af göflunum í nokkur ár og safnað fé fyrir Hollvini Sjúkrahússins á Akureyri en „núna leitum við til ykkar og hvetjum alla til að kynna fyrir okkur ykkar hjartans málefni,“ segir þeir á Facebook. Um morgundaginn segir á Facebook síðu viðburðarins: „Á leiðinni ætlum við að spjalla um góðgerðarverkefnin sem eru í gangi og fram undan.“
Lagt verður af stað frá Slökkvistöðinni við Árstíg á Akureyri klukkan átta í fyrramálið, laugardagsmorgun, og „ef þú hefur áhuga á að slást í för með okkur þá ertu hjartanlega velkominn,“ segir á Facebook.
Slökkviliðsmennirnir ætla að hlaupa en Arnór verður með í för á rafhjóli sínu. Hann er sögukennari við Verkmenntaskólann á Akureyri og mun því fræða hlaupagarpana og aðra sem verða með í vör um ýmislegt áhugavert sem fyrir augu ber á leiðinni. „Félagsskapur á hlaupum og spjall um góðgerðarverkefni sem ykkur þykir vænt um er meira en vel þegið. Við ætlum að halda úti litlu myndbandsbloggi á leiðinni og birta efni hér á síðunni, bæði frá fyrirlestrum Arnórs og úr spjalli um þau fjölmörgu verkefni sem fólk er að vinna að.“

„Þú þarft alls ekki að hlaupa alla 60 kílómetrana til að vera með. Komdu bara og taktu 1-20 kílómetra með okkur, spjallaðu við okkur á leiðinni og kynntu verkefnið þitt!“ segja slökkviliðsmennirnir á Facebook. Þar segir einnig:
- Það væri sérstaklega gaman ef þið mynduð einnig birta hér í athugasemdum upplýsingar um það góðgerðarverkefni sem þið eruð að hlaupa fyrir í Reykjavíkurmaraþoninu, eða önnur verkefni sem eru ykkur hugleikin um þessar mundir.
- Ertu að safna áheitum fyrir Reykjavíkurmaraþonið? Endilega deildu söfnuninni hér líka. Þegar við náum áhorfi og dreifingu á laugardaginn getum við hjálpast að við að vekja athygli á sem flestum góðum málefnum.
- Við reiknum með að verkefnið taki 8-10 klukkustundir þannig að græjaðu þig og komdu bara þegar þér hentar... þetta er smá popup event og nær algjörlega óundirbúið þetta reddast viðburður.
- Við erum að gera þetta til að byggja upp jákvætt samtal, samkennd og kærleika á veraldarvefnum.