Fara í efni
Mannlíf

Ganga í Lystigarðinum í dag í minningu Jóns

Myndin til vinstri: Jón Rögnvaldsson, til hægri, og Kristján bróðir hans í Lystigarðinum á Akureyri. Kristján var múrari að mennt og þeir unnu mikið saman; ráku m.a. saman garðyrkjustöðina Flóru við Brekkugötu. – Til hægri: Brjóstmyndin af Jóni Rögnvaldssyni í Lystigarðinum á Akureyri.

Í tilefni þess að síðastliðinn miðvikudag voru 130 ár liðin frá fæðingu Jóns Rögnvaldssonar, fyrsta formanns Skógræktarfélags Eyfirðinga og forstöðumanns Lystigarðs Akureyrar um árabil, býður félagið til göngu í Lystigarðinum honum og samverkafólki hans til heiðurs. Gangan hefst klukkan 10:00 við suðurhliðið, sjúkrahúsmegin garðsins.

„Við ætlum að ganga þar lítinn hring, virða fyrir okkur nokkur verka hans þar og fræðast um líf og starf þessa „mikilhæfa leiðtoga á sviði skrúðgarðyrkju og landgræðslu“ líkt og stendur á minnisvarða sem honum var reistur í garðinum,“ segir í tilkynningu frá skógræktarfélaginu.

Jón nam ungur garðyrkju erlendis, var á síðustu öld afar öflugur málsvari græna geirans og beitti sér mjög fyrir nýsköpun og framförum innan hans. Hann stofnaði Skógræktarfélag Eyfirðinga árið 1930 og var formaður þess um níu ára skeið. Lystigarðinum á Akur­eyri stjórnaði hann í 16 ár.

Viðburðurinn er hluti af Lífi í lundi sem er sameiginlegt verkefni allra skógræktarfélaga á Íslandi sem nánar má fræðast um hér – allir eru velkomnir í gönguna í Lystigarðinum í dag og boðið er upp á ketilkaffi og kakó að göngu lokinni.

Brjóstmyndin af Jóni Rögnvaldssyni í Lystigarðinum var sett upp árið 1995 í tilefni þess að þá voru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns.