Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hverjir þetta eru?

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Safninu er ekki kunnugt um hvaða tónlistarmenn eru á þessari skemmtilegu mynd, hvar hún er tekin eða hver ljósmyndarinn var.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR