Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 112. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • NAUSTAVÍK – Myndin hér að neðan, sem Ólafur Jónsson tók einnig, birtist fyrir viku. Þetta er Naustavík, eyðibýli í Náttfaravíkum, vestan Skjálfanda, nokkurn veginn gegnt Húsavík eins og Ingvar Teitsson skrifaði í athugasemd eftir að myndin birtist á Facebook síðunni Gamlar ljósmyndir.
  • Borin hafa verið kennsl á tvo mannanna. Herdís Anna Jónsdóttir skrifar: Þetta er Naustavík. Í dyrunum stendur Árni Jóhannesson mjólkurfræðingur fyrir framan hann er faður minn Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði. Ég er ekki viss með hina
  • Gaman væri ef fólk rýndi betur í myndina og næði að átta sig á fleiri nöfnum.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR