Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 106. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • NORÐUREYRI VIÐ SÚGANDAFJÖRÐ – Myndin hér að neðan, sem Ólafur Jónsson tók einnig, birtist fyrir viku. Margar ábendingar bárust um að þetta væri Norðureyri við Súgandafjörð. Myndin er líklega tekin laust eftir miðja síðustu öld og maðurinn fyrir miðri mynd Kristján Sigurðsson bóndi á bænum frá 1906 til 1949. Vert er að vekja athygli á steinfleyg – snjóflóðafleyg – vinstra megin á íbúðarhúsinu, sem er lengst til vinstri á myndinni. Hin húsin voru sögð í vari fyrir mögulegum snjóflóðum. Mynd sem tekin er á sama tíma birtist í bókinni Skriðuföll og snjóflóð eftir Ólaf Jónsson, 3. bindi (1992).