Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 104. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku en aldrei þessu vant hafa engar upplýsingar borist.