Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 99. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók þessa mynd en safninu er ekki kunnugt um hvar þetta er.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin á jörðinni Sellandi í Fnjóskadal, sem Sigurður O. Björnsson prentsmiðjustjóri keypti og stundaði þar gríðarlega umfangsmikla skógrækt. Sigurður og síðari eiginkona hans, Kristín Bjarnadóttir, eru vinstra megin á stéttinni en ekki er vitað hverjir mennirnir tveir eru. Jeppinn á myndinni var í eigu Sigurðar og Kristínar; strangt til tekið var jeppabifreiðin raunar í eigu Ingibjargar dóttur þeirra, sem vann bílinn í happdrætti þegar hún var sjö ára gömul!
  • Til gamans eru hér einnig birtar tvær nýlegar myndir frá Sellandi, sem enn er í eigu fjölskyldu Sigurðar og Kristínar.
  • Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR