Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 97. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók þessa mynd en safninu er ekki kunnugt um hvar þetta er.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Upplýsingar bárust um að þetta væri Tilraunastöðin á Reykhólum á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem nú er rekið gistiheimili. 
  • Skemmtilegar upplýsingar bárust eftir að myndin birtist. Tvær íbúðir voru í tilraunastöðinni, stofan hjá yfirmanninum var þar sem stóri glugginn er, ráðsmaðurinn bjó í hinum endanum. Eldhúsið sneri að fjallinu. Það var í stofunni þarna sem Sigfús Halldórsson samdi hið þekkta lag Litla flugan við ljóð Sigurðar Elíassonar, sem var yfirmaður á tilraunastöðinni. 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR